Tenderlee kaupir réttinn að bók Árna Þórarinssonar „Glæpurinn – ástarsaga“

Marteinn Þórsson (til vinstri) og Árni Þórarinsson handsala samkomulag um kaup á kvikmyndarétti Glæpsins. Milli þeirra situr Jóhann Páll Valdimarsson eigandi Forlagsins sem gaf bókina út.
Marteinn Þórsson (til vinstri) og Árni Þórarinsson handsala samkomulag um kaup á kvikmyndarétti Glæpsins. Milli þeirra situr Jóhann Páll Valdimarsson eigandi Forlagsins sem gaf bókina út.

Kvikmyndafyrirtækið Tenderlee Motion Pictures Company í eigu Marteins Þórssonar hefur tryggt sér kvikmyndarétt skáldsögunnar Glæpurinn – ástarsaga eftir Árna Þórarinsson.

Tenderlee á að baki kvikmyndir á borð við Rokland og XL en Árni er líklega best þekktur fyrir bækur sínar um rannsóknablaðamanninn Einar. Marteinn Þórsson skrifar handrit myndarinnar auk þess að leikstýra en ráðgert er að hún verði tekin upp 2015.

Sagan gerist í einn örlagaríkan vordag í Reykjavík, á 18 ára afmælisdegi Fríðu. Þennan sama dag höfðu foreldrar hennar lofað að upplýsa hana um leyndarmálið sem sundraði fjölskyldunni. Fortíðin birtist okkur smám saman í afturlitum og hrikalegur sannleikurinn kemur í ljós. Mun fjölskyldan sameinast þegar degi tekur að halla eða hafa örlögin þegar spunnið þeim vef?

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR