70% áskrifenda horfðu á fyrsta þátt „The Biggest Loser Ísland“

the-biggest-loserViðbrögð almennings við sjónvarpsþættinum The Biggest Loser Ísland eru þau bestu síðan að SkjárEinn varð að áskriftarsjónvarpi árið 2009. Alls horfði 70% áskrifenda Skjásins á fyrsta þáttinn í frumsýningu, hliðruðu áhorfi eða endursýningu.

Áhorfið er það það mesta á stökum sjónvarpsviðburði í sögu SkjásEins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SkjáEinum.

Meira en 5.000 heimili fengu sér áskrift að SkjáEinum vikurnar í aðdraganda þáttanna og nú hafa áskrifendur stöðvarinnar aldrei verið fleiri.

Sjá nánar hér: Viðskiptablaðið – 70% áhorf á fyrsta þátt The Biggest Loser Ísland.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR