Kvikmyndamiðstöð tekur við endurgreiðslukerfinu

Laufey Guðjónsdóttir forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Laufey Guðjónsdóttir forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Einföldun á umsóknarferli og stjórnsýslu til hagsbóta fyrir kvikmyndaiðnaðinn ásamt betri nýtingu opinbers fjár eru markmið samnings sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Laufey Guðjónsdóttir forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar undirrituðu í dag.

Endurgreiðslukerfi kvikmynda hefur verið starfrækt frá árinu 2001 á grundvelli laga nr. 43/1999. Fyrsta árið voru endurgreiddar alls 13 m.kr. en á síðasta ári námu endurgreiðslurnar 933 m.kr.

Héðan í frá mun Kvikmyndamiðstöð sjá um afgreiðslu erinda og almenna upplýsingagjöf um endurgreiðslukerfi kvikmynda. Jafnframt mun Kvikmyndamiðstöð fylgjast sérstaklega með þróun stuðningskerfa af þessu tagi í Evrópu.

Sjá nánar hér: Kvikmyndamiðstöð Íslands tekur að sér utanumhald á endurgreiðslukerfi kvikmynda | FRÉTTIR | Kvikmyndamiðstöð Íslands.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR