Íslenskar kvikmyndir í sviðsljósinu í Gautaborg

Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson keppir um Drekann.
Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson keppir um Drekann.

Íslenskri kvikmyndagerð verður gert hátt undir höfði á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg. Hátíðin, sem nú er haldin í 37. skipti, hófst síðastliðinn föstudag og lýkur þann 3. febrúar. Alls verða 13 íslenskar kvikmyndir sýndar á hátíðinni.

Málmhaus Ragnars Bragasonar keppir um Drekann.
Málmhaus Ragnars Bragasonar keppir um Drekann.

Hross í oss og Málmhaus keppa um Drekann

Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson og Málmhaus eftir Ragnar Bragason munu taka þátt í keppninni um Drekaverðlaunin (Dragon Award), aðalverðlaun hátíðarinnar.

Baltasar fær heiðursverðlaun.
Baltasar fær heiðursverðlaun.

Heiðursverðlaun til Baltasars

Baltasar Kormáki verður veitt sérstök heiðurs Drekaverðlaun við verðlaunaathöfn hátíðarinnar, en þetta verður í fyrsta sinn sem slík heiðursverðlaun verða veitt á hátíðinni. Auk þess mun hann halda námskeið sem ber heitið „Masterclass with Baltasar Kormákur“.

Fókus á íslenskar kvikmyndir

Sérstakur fókus verður tileinkaður íslenskum kvikmyndum og verða alls 7 íslenskar kvikmyndir sýndar við þetta tilefni. Kvikmyndirnar 7 sem um ræðir eru Bíódagar eftir Friðrik Þór Friðriksson, 101 Reykjavík eftir Baltasar Kormák, Stormviðri eftir Sólveigu Anspach, Voksne mennesker eftir Dag Kára, Hinn undursamlegi sannleikur um Raquelu drottningu eftir Ólaf Jóhannesson, Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur og XL eftir Martein Þórsson.

Sumarbörn Guðrúnar Ragnarsdóttur kynnt sem verk í vinnslu ásmat París norðursins eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson.
Sumarbörn Guðrúnar Ragnarsdóttur kynnt sem verk í vinnslu ásmat París norðursins eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson.

Verk í vinnslu kynnt

Tvær íslenskar kvikmyndir sem eru nú í eftirvinnslu verða kynntar á hátíðinni á sérstökum kynningarvettvangi sem kallast „Works in progress“. Þær eru París norðursins, nýjasta kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar og Sumarbörn, fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem Guðrún Ragnarsdóttir leikstýrir. Kvikmyndirnar tvær verða kynntar sérstaklega fyrir dreifingaraðilum og dagskrárstjórum helstu kvikmyndahátíða.

Hvalfjörður, hin margverðlaunaða stuttmynd Guðmunar Arnars Guðmundssonar verður sýnd á hátíðinni.
Hvalfjörður, hin margverðlaunaða stuttmynd Guðmunar Arnars Guðmundssonar verður sýnd á hátíðinni.

Stutt- og heimildamyndir

Þá verða stuttmyndin Hvalfjörður eftir Guðmund Arnar Guðmundsson og heimildamyndin Vive la France  eftir Helga Felixson og Titti Johnson sýndar á hátíðinni.

Umræður um íslenska kvikmyndagerð

Sérstakar umræður um íslenska kvikmyndagerð, „Focus Iceland: A conversation on Icelandic cinema“, munu fara fram á meðan hátíðinni stendur. Umræðunum verður stjórnað af Ara Gunnari Þorsteinssyni kvikmyndagagnrýnanda og Benedikt Erlingsson, Friðrik Þór Friðriksson og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir aðalleikona Málmhauss munu halda tölu og taka þátt í umræðunum.

Fyrirlestur um íslenska sjónvarpsframleiðslu

Framleiðandinn Magnús Viðar Sigurðsson verður aðalfyrirlesari á „TV Drama Vision“ fyrirlestrinum, þar sem hann mun fjalla almennt um íslenska sjónvarpsframleiðslu í gegnum tíðina og hvað er framundan í framleiðslu sjónvarpsefnis hjá hinu nýstofnaða framleiðslufyrirtæki Rvk. Studios.

Tvær myndir í Nordic Light flokknum

Falskur fugl eftir Þór Ómar Jónsson og hin bandarísk/íslenska Days of Gray eftir Ani-Simon Kennedy munu svo taka þátt í Nordic Light sýningarröð hátíðarinnar.

Veisluhöld

Að síðustu má nefna að tvö íslensk teiti verða haldin á meðan hátíðinni stendur. Þungarokksgleðskapur verður haldinn að lokinni sýningu á Málmhausi og Hjaltalín mun spila í teiti sem kallast einfaldlega „Icelandic Party“. Hjaltalín mun einnig spila samhliða sýningunni á Days of Gray.

Nánari upplýsingar um fókus hátíðarinnar á íslenska kvikmyndagerð má nálgast hér.

Heimasíða hátíðarinnar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR