Íslandsstofu falið að halda áfram umsjón Film in Iceland

Ragnehiður Elín Árnadóttir iðanaðarráðherra og Jón Ásbergsson forstöðumðaur Íslandsstofu undirrita áframhaldandi samstarfssamning um verkefnið Film in Iceland.
Ragnehiður Elín Árnadóttir iðanaðarráðherra og Jón Ásbergsson forstöðumðaur Íslandsstofu undirrita áframhaldandi samstarfssamning um verkefnið Film in Iceland.

Í gær undirrituðu iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu samning um að Íslandsstofa myndi áfram annast umsjón verkefnisins Film in Iceland í samræmi við lög um endurgreiðslu til kvikmynda- og sjónvarpsgerðar frá árinu 2001. Samningurinn gildir til  þriggja ára, eða út gildistíma laganna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsstofu.

Íslandsstofa og forverar hennar, hafa haft umsjón með Film in Iceland verkefninu allt frá samþykkt laganna árið 2001. Hlutverk Íslandsstofu hefur verið að kynna lög um 20% endurgreiðslu af framleiðslukostnaði fyrir erlendum kvikmynda- og sjónvarpsframleiðendum annars vegar og hins vegar að kynna Ísland sem ákjósanlegan tökustað.

Ísland hefur verið vinsæll tökustaður fyrir bæði kvikmyndir og sjónvarpsþætti undanfarin ár. Má í því sambandi meðal annars nefna þættina Game of Thrones, og kvikmyndir á borð við The Secret Life of Walter Mitty og nú síðast Interstellar. Þessi verkefni hafa skilað miklu fyrir íslenskt þjóðarbú. Fjöldi starfa í kringum stór kvikmyndaverkefni geta skipt hundruðum, seldar eru þúsundir gistinátta á hótelum, tugir bílaleigubíla eru í útleigu auk annarrar þjónustu af ýmsum toga. Þá hefur tekist gott samstarf á milli Íslandsstofu og hina erlendu framleiðendenda um kynningu á Íslandi í aðdraganda frumsýningar þeirra mynda sem hafa verið teknar upp á Íslandi.

Sjá umfjöllun Klapptrés um afraksturinn af endurgreiðslufyrirkomulaginu hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR