33 alþjóðleg verðlaun til íslenskra kvikmynda 2013

Alls hlutu íslenskar kvikmyndir 33 verðlaun á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum á árinu 2013 og verður það að teljast ágæt útkoma. Hæst bera dómefndarverðlaun á Cannes til handa stuttmyndinni Hvalfirði eftir Guðmund Arnar Guðmundsson (í fyrsta skipti sem íslensk kvikmynd er verðlaunuð á Cannes), leikaraverðlaun til handa Ólafi Darra Ólafssyni á Karlovy Vary fyrir XL Marteins Þórssonar og síðast en ekki síst, ótrúleg sigurganga fyrstu bíómyndar Benedikts Erlingssonar Hross í oss sem hlaut alls 10 verðlaun á fjórum síðustu mánuðum ársins, þar á meðal á San Sebastian og Tokyo sem báðar teljast með virtustu kvikmyndahátíðum líkt og Karlovy Vary og að sjálfsögðu Cannes.

Svo virðist sem aðeins ein önnur evrópsk bíómynd síðasta árs hafi verið meira verðlaunuð; ítalska myndin The Great Beauty (16 verðlaun). Belgíska myndin The Broken Circle Breakdown, sem frumsýnd var í október 2012, hlaut einnig 11 alþjóðleg verðlaun á síðasta ári og sá fyrirvari er gerður að einhver önnur mynd síðasta árs kann að hafa hlotið fleiri verðlaun.

Verðlaun til íslenskra kvikmynda á árinu

hvalfjörður-2013
Úr stuttmyndinni Hvalfjörður eftir Guðmund Arnar Guðmundsson, sem meðal annars var verðlaunuð á Cannes 2013, fyrst íslenskra kvikmynda.

Hvalfjörður: Stuttmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar hlaut alls 12 alþjóðleg verðlaun á árinu á eftirfarandi hátíðum:  Cannes Frakklandi, Giffoni Ítalíu, Brest Frakklandi, Ghent Sviss, Hamptons Bandaríkjunum, Varsjá Póllandi,  Les Percéides Kanada, Zagreb Króatíu, Chicago Bandaríkjunum, RIFF Íslandi (2), Arcipelago Rússlandi.

Katherine Waterston (dóttir hins kunna leikara Sam Waterston) og Walter Grímsson í Ástarsögu eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttiur.
Katherine Waterston (dóttir hins kunna leikara Sam Waterston) og Walter Grímsson í Ástarsögu eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttiur.

Ástarsaga: Stuttmynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur hlaut alls 4 verðlaun á árinu: New Orleans Bandaríkjunum, Northern Wave Íslandi, Rhode Island Bandaríkjunum, Open Place Lettlandi (myndin er lokaverkefni Ásu Helgu frá Columbia kvikmyndaskólanum í New York).

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir stjórnandi myndarinnar og viðfangsefni hennar, Hrafnhildur
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir stjórnandi myndarinnar og viðfangsefni hennar, Hrafnhildur

Hrafnhildur – heimildamynd um kynleiðréttingu: Heimildamynd Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur hlaut 1 verðlaun 2013, á Norrænum kvikmyndadögum í Lubeck Þýskalandi.

María Birta Bjarnadóttir, Marteinn Þórsson leikstjóri og Ólafur Darri Ólafsson í Karlovy Vary 2013.
María Birta Bjarnadóttir, Marteinn Þórsson leikstjóri og Ólafur Darri Ólafsson í Karlovy Vary 2013.

XL: Bíómynd Marteins Þórssonar hlaut verðlaun á Karlovy Vary í Tékklandi til handa Ólafi Darra Ólafssyni (besti leikarinn).

 

Benedikt Erlingsson tekur á móti leikstjóraverðlaununum í Tokyo.
Benedikt Erlingsson tekur á móti leikstjóraverðlaununum í Tokyo.

Hross í oss: Bíómynd Benedikts Erlingssonar fékk alls 10 verðlaun 2013 á eftirfarandi hátíðum:  San Sebastian Spáni, Tokyo Japan, Les Arcs Frakklandi (2), Amiens Frakklandi (2), Black Nights Tallinn Eistlandi (3) og REC Tarragona Spáni. Benedikt, Bergsteinn Björgúlfsson tökumaður og Davíð Þór Jónsson tónskáld voru allir sérstaklega verðlaunaðir.

Úr stuttmyndinni Víkingar eftir Magali Magistry.
Úr stuttmyndinni Víkingar eftir Magali Magistry.

Víkingar:  Stuttmynd franska leikstjórans Magali Magistry sem gerð var hér á landi með íslenskum leikurum og framleidd af Zik Zak kvikmyndum hlaut 1 verðlaun á síðasta ári, í Amiens Frakklandi. Hún var einnig sýnd á Critic’s Week í Cannes.

Erlingur Óttar Thoroddsen leikstjóri tekur við verðlaunum sínum á Screamfest í Los Angeles í síðustu viku.
Erlingur Óttar Thoroddsen leikstjóri tekur við verðlaunum sínum á Screamfest í Los Angeles í síðustu viku.

The Banishing: Stuttmynd Erlings Óttars Thoroddsen hlaut 1 verðlaun á síðasta ári, á hinni virtu hrollvekjuhátíð Screamfest í Los Angeles Bandaríkjunum (Erlingur er nýútskrifaður í kvikmyndaleikstjórn frá Columbia kvikmyndaskólanum í New York).

Jóhann Sigfússon og Anna Dís Ólafsdóttir hjá Profilm hlutu verðlaun í Japan fyrir heimildamynd sína Fílahvíslarinn.
Jóhann Sigfússon og Anna Dís Ólafsdóttir hjá Profilm hlutu verðlaun í Japan fyrir heimildamynd sína Fílahvíslarinn.

Fílahvíslarinn (Elephant Whisperer): Heimildamynd Jóhanns Sigfússonar og Önnu Dísar Ólafsdóttur hjá Profilm hlaut 1 verðlaun á árinu, á Japan Wildlife Film Festival, stærstu hátíð Asíu fyrir náttúrulífsmyndir.

Úr sænsk/íslensku myndinni Hemma sem tekin var á hér á landi sumarið 2012.
Úr sænsk/íslensku myndinni Hemma sem tekin var á hér á landi sumarið 2012.

Ennfremur skal minnst á sænsk/íslensku myndina Hemma eftir Maximilian Hult sem hlaut áhorfendaverðlaunin á Busan í S-Kóreu og einnig verðlaun kirkjunnar í Mannheim/Heidelberg í Þýskalandi. Myndin er m.a. framleidd af Önnu G. Magnúsdóttur framleiðanda í Svíþjóð og kvikmyndafélaginu Hughrif sem Guðrún Edda Þórhannesdóttir og Friðrik Þór Friðriksson standa að, en var tekin upp hér á landi sumarið 2012.

 

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR