Clint og félagar ósáttir með íslensk stjórnvöld

Vísir bregður á leik með myndmálið og vísar í kvikmyndasöguna.
Vísir bregður á leik með myndmálið og vísar í kvikmyndasöguna.

Clint Eastwood, Darren Aronofsky, Terrence Malick og margir fleiri erlendir aðilar í kvikmyndabransanum hafa sent ríkisstjórn Íslands harðort bréf. Hópurinn sendir ríkisstjórninni yfirlýsingu til þingmanna með hvatningu um að efla frekar en að skera niður atvinnugrein í sókn sem skapar fjölda starfa og margfaldar fjárfestingu hins opinbera. Meðal þeirra sem undirrita bréfið eru margir sem hafa komið með stór verkefni hingað til lands á undanförnum árum.

Stuðningsyfirlýsinguna í heild sinni má sjá sér að neðan, en hún var jafnframt birt á síðu Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda:

Við undirrituð höfum haft þá ánægju að vinna við upptökur á einu eða fleirum kvikmyndaverkum á Íslandi. Að okkar mati eru þeir íslensku kvikmyndagerðarmenn sem við höfum unnið með fagmenn í hæsta gæðaflokki. Þeir koma ekki einvörðungu með sérþekkingu í verkefnin, heldur hafa þeir reynst ómetanlegir ráðgjafar um íslenskar aðstæður, hætti og staði og hafa þannig fært ómetanlegan ávinning til okkar verka.

Við stöndum með þeim og íslensku kvikmyndagreininni á Íslandi í tilraunum þeirra við að viðhalda núverandi stöðu opinberrar fjárfestingar í kvikmyndagreininni og við skorum á íslensku ríkisstjórnina að endurskoða núverandi áætlanir um niðurskurð á Kvikmyndasjóði.

Þeir sem skrifa undir bréfið:

  • Alexandra Malick – Framleiðandi
  • Beau Marks – Framleiðandi
  • Chris Brigham – Framleiðandi
  • Chris Newman – Framleiðandi
  • Clint Eastwood – Leikari og leikstjóri
  • Dan Weiss – Höfundur og framleiðandi
  • Darren Aronofsky – Leikstjóri
  • Davod Benioff – Höfundur og framleiðandi
  • Duncan Henderson – Framleiðandi
  • G. Mac Brown – Framleiðandi
  • Mylan Stepanovich
  • Robert Lorenz – Framleiðandi og leikstjóri
  • Sam Miller – Leikstjóri
  • Selwyn Roberts – Framleiðandi
  • Steve Papazian – Forstjóri
  • Terje Strømstad – Framleiðandi
  • Terrence Malick – Leikstjóri
  • Tommy Wirkola – Leikstjóri

Sjá nánar hér: Vísir – Clint Eastwood sendir ríkisstjórninni tóninn.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR