Ulrich Seidl heimsækir Ísland

Ulrich Seidl leikstjóri Paradísarþríleiksins.
Ulrich Seidl leikstjóri Paradísarþríleiksins.

Helgina 22. – 24 nóvember mun hinn margverðlaunaði austurríski leikstjóri Ulrich Seidl koma til Íslands þar sem hann mun opna síðustu myndina í Paradísar tríólógíunni Paradís: Von.

Paradís: Ást og Paradís: Trú hafa gengið vel í Bíó Paradís og hlotið góða umfjöllun og gagnrýni í innlendum fjölmiðlum.

Um leikstjórann

Ulrich Seidl á langan feril að baki, en hann fæddist í Vínarborg árið 1952 og ólst upp í bænum Horn í Austurríki. Hann nam blaðamennsku, listasögu og leiklist. Hann sinnti hinum ýmsum störfum áður en hann gekk í kvikmyndaakademíunna í Vín aðeins 26 ára. Árið 1980 kom fyrsta heimildamynd hans út Einsvierzig. Tveimur árum seinna, árið 1982, kom önnur mynd hans út Der Ball – sem var kaldhæðinn og beitt mynd sem fjallaði um útskriftardansleik í heimabæ hans, og hætti hann í kjölfarið í kvikmyndaskólanum.

Árið 1990 þá kom út heimildakvikmynd eftir hann í fullri lengd, Good News. Á þessum áratug komu sjö heimildamyndir út bæði fyrir kvikmyndahús og sjónvarp sem hann hefur unnið fjöldann allan af verðlaunum fyrir.

Fyrsta leikna mynd Seidl, Dog Days, kom út árið 2001 vann til fjölda mikilvægra verðlauna m.a. Grand Jury verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 2001. Sama ár kom Zur Lage / State of the Nation – gagnrýnin mynd um Austurríki undir stjórn hægrisinnaðrar samsteypustjórna stjórnavalda. Seidl var aðstoðarleikstjóri verksins sem einnig innihélt þætti eftir Barbara Albert, Michael Glawogger og Michael Sturminger. Árið 2003, kom hin umdeilda mynd út Jesus, you know (Jesus, Du weisst) og árið 2007 kom ein hans allra þekktasta leikna mynd í fullri lengd, Import/ Export sem fjallar um úkraínskan hjúkrunafræðing sem leitar betri lífs í vestri, og atvinnulausann öryggisvörð í Austurríki sem heldur austur í sama tilgangi. Myndin var tilnefnd til aðalverðlaunana Palme d´Or á Kvikmyndahátíðinni í Cannes það ár.

Paradísarþríleikurinn

Paradísar tríólógía Seidl hefur hlotið fjölda verðlauna, Paradís: Ást keppti til aðalverðlauna Palme d´Or árið 2012 á Kvikmyndahátíðinni í Cannes, Paradís: Trú vann sérstök verðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 2012 en var jafnframt tilnefnd til aðalverðlauna hátíðarinnar Gullna ljónsins. Paradís: Von var frumsýnd og keppti til aðalverðlauna á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín árið 2013 ásamt því að hún var sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðini í Toronto sama ár.

Myndirnar hafa tekið á áleitnum og erfiðum viðfangsefnum, og er Ulrich talinn vera einn sá helsti áhrifamaður heimildamyndagerðar og kvikmynda sem sækja áhrif til raunverulegrar nálgunnar listfengnar túlkunnar á fólki, aðstæðum, andrúmslofti og þeirrar listar að segja sögu í kvikmynd.

Hér má líta umfjallanir The New York Times og The Hollywood Reporter um Paradísarþrílekinn og Ulrich Seidl.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR