Ást og kynlíf á tímum hnignunar

Sidasti_elskhuginn_1Á hnignunartímum hugsa allir fyrst og fremst um kynlíf. Þetta er baksvið myndarinnar The Decline of the American Empire eftir Kanadamanninn Denys Arcand.

Skáldsagan Síðasti elskhuginn eftir Val Gunnarsson sækir í sama brunn. Af þessu tilefni verður fyrrnefnd mynd sýnd í Bíó Paradís laugardaginn 9. nóvember kl. 18 og mun Valur stíga á stokk fyrir sýninguna, ræða sögusvið bókar sinnar og hvernig hún kallast á við mynd Arcand. Hver er staða mála á Íslandi í dag eftir að herinn dró sig heim? Hvernig er ástarmálum okkar háttað? Og erum við með einhverja sérstaka íslenska leið til að nálgast ástina?

Valur Gunnarsson rithöfundur.
Valur Gunnarsson rithöfundur.

Uppákoman er jafnframt útgáfuhóf bókarinnar. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem útgáfupartí er haldið í bíói hérlendis, enda hefst ástarsaga hans í sama bíói og á sýningu myndar eftir Denys Arcand. 

„The Decline of the American Empire var gerð árið 1986, sama ár og Reagan og Gorbachev hittust í Höfða og veldi Bandaríkjanna virtist vera að ná hápunkti sínum“ segir Valur. „En fyrir Arcand var hnignunin þegar orðin augljós og rétt eins og Rómverjar í sinni síðustu orgíu lætur hann persónur sínar, fjóra karlmenn og fjórar konur, skeggræða ástarmál sín fram og tilbaka, löngu áður en Sex and the City þættirnir birtust fyrst á skjánum.“

Sjá nánar hér: Samfarir og hnignun heimsvelda- útgáfuhóf og kvikmyndasýning.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR