„Hvalfjörður“ sópar til sín verðlaunum

Guððmundur Arnar Guðmundsson tekur við verðlaunum á Hamptons hátíðinni í Bandaríkjunum á dögunum.
Guððmundur Arnar Guðmundsson tekur við verðlaunum á Hamptons hátíðinni í Bandaríkjunum á dögunum.

Hvalfjörður, stuttmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar, sem hlaut dómefndarverðlaun á síðustu Cannes-hátíð, hefur rakað til sín verðlaunum á undanförnum mánuðum, nú síðast hlaut myndin þrenn verðlaun á nýafstöðnum alþjóðlegum hátíðum. Auk þess er skemmst að minnast þess að myndin var valin besta íslenska stuttmyndin á RIFF og hlaut einnig verðlaun fyrir besta hljóðið í íslenskri stuttmynd á sömu hátíð.

Myndin hlaut Golden Starfish verðlaunin á Hamptons hátíðinni í Bandaríkjunum og er þar með orðin gjaldgeng fyrir tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir bestu leiknu stuttmyndina árið 2014. Samkeppnin í Hamptons var einstaklega hörð þetta árið en þar kepptu stuttmyndir sem hafa m.a. hlotið aðalverðlaunin á Berlinale kvikmyndahátíðinni og á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum, en báðar eru þær „A“ hátíðir.

Einnig var hún valin besta stuttmyndin á Film Fest Gent hátíðinni í Belgíu en með þeim sigri hlaut hún tilnefningu til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2014.

Síðast en ekki síst var Hvalfjörður valin besta leikna stuttmyndin á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Varsjá í Póllandi sem lauk um helgina. Kvikmyndahátíðin í Varsjá telst til svokallaðra „A“ hátíða.

Í umsögn dómnefndar alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Varsjá segir: „Hvalfjörður hlýtur verðlaun fyrir framúrskarandi kvikmyndatjáningu á mannlegum samskiptum, með ákaflega athugulli leikstjórn og eftirtektarverðri frammistöðu leikara.”

Vefur myndarinnar er hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR