Aldingarðurinn, nýtt fyrirtæki í tónlist fyrir kvikmyndir, tekur til starfa

Þórhallur Stefánsson.
Þórhallur Stefánsson.
Magnús Leifur Sveinsson.
Magnús Leifur Sveinsson.

Aldingarðurinn, nýtt fyrirtæki á sviði tónlistarframleiðslu fyrir kvikmyndir, auglýsingar og sjónvarp hefur tekið til starfa. Eigendur eru tónlistarmennirnir Magnús Leifur Sveinsson og Þórhallur Stefánsson sem báðir eru menntaðir hljóðtæknimenn.

Í Aldingarðinum er boðið upp á ýmsar lausnir fyrir hljóðvinnslu og hljóðsköpun, m.a. upptökur, hljóðblöndun, hljóðjöfnun, talsetningu og eftirvinnslu á hljóði fyrir mynd, útvarp og hljóðbók. Einnig er boðið upp á tónsmíðar fyrir kvikmyndir, auglýsingar og aðra miðla.

Hljóðstofan skiptist í stóran og hljómfagran upptökusal, hljóðstjórn og sér hljóðeinangraðan upptökuklefa. Aðstaðan er hlýleg með úrval fjölbreyttra hljóðfæra sem viðskiptavinir garðsins geta nýtt sér. Hægt er að leigja Aldingarðinn

með eða án hljóðmanns.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR